17.12.2008 20:32:43 / rakelbjossi
Setti inn nokkrar gamlar myndir sem ég fann í gömlu tölvunni okkar , það er ein mynd þarna ( mynd nr 2 ) sem er allveg sérstaklega mikill svipur með Heru og pabba hennar ,kíkiði á.
»
26.11.2008 19:00:30 / rakelbjossi
próf að koma , Og Rakel í sjokki eins og vanalega þegar þau koma , önnin æddi áfram eins og hraðlest og lét mig ekki vita að ég þyrfti að fara að undirbúa mig , svo af mér er ekkert að frétta enda held ég að engin lesi þessa síðu en ef einhver gerir það þá má hinn sami hugsa vel til mín vikuna 1-5 des á meðan prófin eru og eftir það koma og leika eitthvað við mig því ég fæ ansi gott jólafrí ,heilan mánuð , gott mál , en sjáumstum okídókkí
»
25.10.2008 18:39:08 / rakelbjossi
Lina, mín ástkæra systir útskrifaðist í dag með BA í félagsfræði, þú ert svo mikill snillingur Lína mín , mér finnst þú standa þig svo vel og vera svo dugleg í því sem þú tekur þér fyrir hendur, ég er svo stolt af þér og þykir svo óendanlega vænt um þig að ég á engin orð yfir það ,til hamingju hjartagullið mitt.
Lína ættlar að halda útskriftarveislu í kvöld kl 20 og þar ættla ég að vera skla ég segja ykkur, myndi ekki missa af þessu þótt mikið lægi við.
Annars er gott að frétta bara , skólinn gengur sinn vanagang , Hera og Þórey eru auðvitað alltaf jafn æðislegar, Hera er bara orðin svo fullorðin að maður er bara farin að hafa áhyggjur hvar þetta endar , það er sko tekið sér góðan tíma í það að velja rétt föt fyrir skóladaginn , má ekki vera of barnalegt ,vill hafa pínu rokkarabrag yfir lúkkinu ,hárið á vera greitt í hátt tagl ,ekki of barnalega teygju í hárið samt, ekki út í kuldaskóm því það er svo glatað og helst ekki hlífðarbuxur ,ekkert má vera athugavert við lúkkið sko ,ég á bara ekki til orð yfir 7 ára barninu stundum .
Þórey Adda ofurbarn er ofvirk held ég hehe, hún er á endalausu iði getur ekki verið kyrr eitt augnablik í fanginu á manni , það er ekki séns að sitja með hana í rólegheitunum ,hún reynir bara að standa upp og beyglar sig alla til , hún er farin að snúa sér á bakinu yfir á magan og maganum yfir á bakið þegar hún liggur, hún tekur upp dót og getur fært það á milli handa , hún er farin að borða graut sem henni finnst vondur samt ,hún getur tekið upp cheerios með tvemur fingrum og stungið upp í sig ,hún er orðin 7 kílo ,og er hætt að detta framfyrir sig þegar hún situr en dettur reyndar til hliðar svo er hún allan daginn bara í því að reyna að ná í skottið á mæju sem er ekkert að fíla það og reynir eftir fremsta megni að halda sig í ákvenri fjarlægð frá Þóreyju.
Í gær var ég uppá landsspítala í tannlækna aðgerð þar sem ég, einn tannlæknir og ein önnur stelpa ( tanntæknir) þurftum að vinna í mjög illa förnum tönnum á tvemur 3 ára guttum , þeir voru svæðir af svæfingarlækni fyrst því þetta voru töluverðar skemmdir og tannúrdráttur sem þurfti að framkvæma á þeim , þetta var mjög athyglisvert og sannaðist það enn eina ferðina fyrir mér að ég er akkurat að læra það sem mér finnst skemmtilegt, en verð samt að segja að þetta var pínu erfitt að horfa á því þeir voru svo ósköp ungir þessir drengir .
í gærkvöld komu svo Ásta skólasystir og frænka og sonur hennar í mat og klikkaði Bjössi ekki á matargerðinni frekar en fyrri daginn svo í dag vorum við bara í geðveikinni inní smáralind .
Jæja elskurnar þetta var bara smá fréttaskot frá Engjavöllum
»
11.10.2008 19:44:00 / rakelbjossi
Hún ofurfallega ,yndislega ,æðislega Sigurveig Hera mín átti afmæli núna í vikunni, hún er orðin sjö ára stalpan, í tilefni þess varð auðvitað að halda 2 afmælisveislur, ein var haldin á sjálfan afmælisdaginn 8 okt með kvöldmat fyrir fjölsk , ömmur,afar,frænkur og frænda og svo var ein fyrir bekkjarsystur í dag , það komu hér 10 , 7ára stelpur og þemað var ABBA what else , rosa fjör og standandi pary í 2 klst og núna held ég að ég þurfi að fara í 1 viku á heilsuhælið í hveragerði til að jafna mig eftir þetta , úffffffff.
Annars er ágætt að frétta bara , ég fór til Evu Daggar í gær ,litli tanaði snáðinn hennar er auðvitað algjört bjútí og litla Þórey tröllabarn var eins og fullorðin manneskja við hlið hans hehe algjörar dúllur sko , en núna eru þessum barnseignum lokið í bili í okkar hópi held ég nema einhver vilji nota þetta tækifæri og tilkinna okkur eitthvað.
Skólinn gengur ágætlega , vildi samt óska þess að ég væri bara búin , er stundum ekki allveg að nenna þessu , en ég er búin að fara í heimsóknir á 2 stofur og vinna smá og það var bara gaman.
Hera fór í gær með pabba sínumog Örnu í 3d sónar og svo fékk ég að sjá myndir og ég get ekki betur séð en Hrólfur 2 sé að koma í heiminn hehe skondið sko.
Akkurat núna vildi ég að ég væri á Villa Vil tónleikunum , er í algjörum mínus að vera ekki þar
en svona er það nú bara í kreppunni.
Jæja nóg í bili best ég monti mig aðeins hér í lokin en ég gerð 2 frekar stór verkefni í rótfyllingu í skólanum og fékk 8 fyrir eitt en 9 fyrir hitt , bæjó
»
22.09.2008 22:35:33 / rakelbjossi
Jæja vó hvað ég er terrable bloggari , en hvað með það maður , það er svo vibba mikið að gera hjá mér þessa tíðinna að ég næ ekki í mitt eigið rassgat, skóli alla virka daga frá 8-16 ,reyndar styttra á föstud, læra heima alla virka daga sirka 2 x tíma á dag, leikfimi 3 x í viku ( já ég er í leikifimi og hananú) tiltekt í heimahúsi (vinnan mín) 1 x í viku , hugsa um stelpurnar mínar báðar sem fá endalausa mömmu sýki um leið og ég labba inn heima hjá mér ,svo eru endalausar afmælisveislur ,skýrnaveislur, innflutningsveislur og útskriftarveisla sem eru í gangi í kringum mig núna allt á sama tíma , úff það er mikill munur að hafa bara chillað í allt sumar svo bara um leið og haustið skellur á fer allt í syngjandi flug, ég var bara ekki allveg viðbúin þessu, svo er þessi skóli minn með endalaus verkefni sem gilda öll bara allveg helling af lokaeinkunn þannig að maður þarf að leggja sig alla í þetta og svo er það fjarnámið líka sem ég skráði mig í , EN ÉG GET HÆTT AÐ VORKENNA MÉR ,ÉG KAUS ÞETTA SJÁLF .
En allavega þá átti Doffa , Didda og ELva systur mínar allar afmæli í sept , Doffa 15 ,Didda og Elva í dag ,til hamingju með það mína ástkæru , svo var ómar með afmæli fyrir sína konu á föstud síðasta og innflutningsparty , ég fór þangað , það var bara fínt ,soldið troðið en fínt, svo á Hera mín afmæli í okt og Lína útskrifast ,þetta verður eitthvað svona fjörugt fram að jólum .
Ég fór í vísindaferð með skólanum um daginn , horfði á aðgerð á manni sem var verið að bora implanti ofaní kjálkabeinið á honum ,þetta var svona rosalega flott aðgerð að ég fékk allt í einu þann draum í mig að verða bara tannlæknir en svo sá ég fyrir mér alla vinnunna sem er þar á baki og snarsnéri þessum draum við bara , en töff samt.
en sorry þetta átti að vera skemmtilegra blogg en ég hef bara ekkert um að tala nema skólan og fjölskylduveislur svo ég segi bara blesss ,
p.s fer allveg að setja inn myndir á barnaland
»
09.09.2008 22:08:13 / rakelbjossi
Eva Dögg Klukkaði mig beint á rassinn
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Leikskólum
Sjoppum
Frystihúsum
Lagerum
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
Mýrin
Dejavu
Djöflaeyjan
Sódóma
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Raufarhöfn
Vogar á vatnsl
Reykjavík
Akureyri
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
Prison
Friends
Grey´S
Ríkið
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Írland
Costa del Sol
Danmörk
Þýskaland
Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):
69.is
Visir.is
Mbl.is
Fít.is
Fernt matarkyns sem ég held upp á:
Tortilla
lasagne
fiskur
Píta
Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:
Dýragarðsbörnin
Skólabækur
Bækur eftir Arnald
Bækur eftir Stefán Mána
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Steinsofandi upp í rúmi
Sofandi frammi í sófa
Sofandi með fjölskylduna alla umkringda mig
Sofandi erlendis á sólbedda ( er þreytt þegar ég skrifa þetta)
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
Doffa systir
Berglind ósk frænka
Elva B
Ylfa Lind
»
02.09.2008 22:40:56 / rakelbjossi
Jæja 1 vika búin af skólanum
,leið bara ansi hratt fannst mér, vonandi líður önnin öll bara jafn hratt ,
nenni eiginlega ekki þessu skólabulli, enda alltaf skítblönk á þessum
skítanámslánum.
En á laugardag fórum við uppí mósó á hátið sem kallast "í túninu heima " ég ,Bjössi ,Heran mín Þóreyin mín,
Alma ,Kobbi ,Eva og auðvitað bumbuprinsinn hennar Evu sem fær aldrei að ráða
hvert við förum næst , við lögðum bílunum okkar uppá kfc og löbbuðum niður í
Kvosina (10-15 mín frá kfc) til að fara skoða okkur þar um og gá hvað væri um
að vera og ég get svo sagt ykkur það að það rigndi svo akkurat á meðan við
löbbuðum þetta að það var eins og við værum að ganga uppúr sundlaug þagar við
loks komust í húsaskjól , ég og Eva vorum í kawasaki skóm sem ekkert gagn voru
að gera ,Eva gat ekki rent úlpuni vegna bumbunar og var prinsinn orðinn
massakaldur eflaust , Alma var ekki með neina regnhlíf svo hún rigndi bara
niður ,Kobbi og Hera voru á góðri leið með að verða eitt drullusvað ,Bjössi
þakkaði guði fyrir að nota úlpu í fyrsta sinn á þessu ári en Þórey sat bara
vernduð í sínum vagni og horfði á okkur öll á leið til glötunnar , en okkur
Ölmu til MIKLLAR gleði rákumst við á búð sem seldi regnslær , jebb keyptum 2 rauðar fyrir okkur og 2 bláar fyrir
börnin , tættum okkur í þær inní búðinni með hel-dofnum fingrum rukum síðan út
sigri hrósandi til í allt og viti menn ????það kom ekki dropi úr lofti og
nánast ekkert eftir þetta en við ákváðum nú samt að vera áfram í þeim ef þetta
væri bara eitthvað djók i veðurguðunnum, eftir að við skoðuðum pínu meira þarna
og vorum búnar að eyða fé í algerlega braglausar kleinur ákvaðum við að labba
niðrá íþróttavöll ásamt Línu sem var búin að slást í för með okkur því niðrá
velli var sko ómar bró og hans fyrirtæki að fara að keppa í búningakeppni og í smá
ólimpíuleikum og við vorum þarna hans helsta stuðningslið og tapaði ég bara
nærri því röddinni við þetta allt saman, en þeir höfnuðu í öðru sæti sem er
bara mjög gott enda var orkudrykkurinn hans ómar að gera góða hluti hehe en
dagurinn var bara voða fínn þrátt fyrir úrhellið fyrr um daginn.
Á Sunnudaginn voru svo hvorki meira né
minna en 2 barnaafmæli jebb og svo kíkti á nýju íbúðinna
hans Örvars ,strákurinn bara búin að kaupa sínu fyrstu íbúð, til hamingju elsku
hjartans rúsinurassgatið mitt .
Svo ber það hæðst að hún Alma ýr varð 25 ára í gær , assasssasss stelpan að eldast , til hamingju dúlla
»
26.08.2008 16:15:33 / rakelbjossi
Blogga smá, jæja nú er skólinn byrjaður aftur , það er bæði gaman og erfitt , gamanið er að vera kominn í tanngarð og vera að læra alla þessa verklegu hluti sem snúa að þessu námi og kynnast nýju fólki og sérstaklega gaman að vera farin að sjá fyrir endan á náminu en erfiðið að vera ekki með heima með Þóreyju á daginn og geta ekki tekið á móti Heru þegar hún er búin með sinn skólatíma, mér líður eins og ég sé pínu útundan þegar ég kem heim á daginn og fæ að heyra hvernig dagurinn hjá fjölsk var , en Bjössi er nú svo mikill snilli að hann rúllar þessu upp hérna allan daginn og passar að láta mig vita reglulega hvað er í gangi hverju sinni.
Um síðustu helgi var menningarnóttin góða eins og margir vita og tókum við þátt í henni eins og svo margir , síðan næstu helgi verður hátíð í Mosó sem ég var að hugsa um að kíkja aðeins á , fara með börnin að sjá brennuna og brekkusöng og einhverja leiki og gaman bara , helgina eftir það er sálarball í mósó ,mér langar allveg djöfulega að kíkja á það en ekki með börnin með í þá skemmtun híhí, aannars er ég að fara í fjarnám líka þannig að ég veit ekki allveg hve mikin tíma ég hef um helgar til að vera á þvælingi allar helgar , sé til bara.
Af vinum er það að frétta að Elva B eignaðist stúlku um daginn og Harpa skírði strákinn sinn um daginn og fékk hann nafnið Bjarni Snæbjörn , núna eru semsagt Ég ,Harpa, Ylfa, Eva Guðrún og Elva búnar að eiga og í þessari röð en Eva dögg rekur lestina og kemur ekki með sitt fyrr en 30 sept en ég spái 22 sept með hana .
jæja man ekkert meira ,verðum í bandi
»
12.08.2008 14:18:32 / rakelbjossi
Núna fer þetta örugglega að lagast með mig og bloggið , allavega þegar skólinn byrjar og meiri regla kemst á lífið, ég er bara búin að blogga 3 sinnum í sumar held ég , enda fullt af myndum komnar sem ég þarf að fara að setja inn á barnasíðuna.
En gott að frétta bara , er búin að gera helling , fór á Blönduós með fjölsk það vara bara rosa gaman , horfi á torfæruna ,brann á nefinu og svona fínt , grillað, spilað víkingaspilið og margt annað skemmtó, svo fórum við Þórey bara tvær í bústað með Línu og Önnu mæju og co ,það var bara í miðri viku vikuna fyrir versló ,það var bara svona rólegheita ferð ,voða kosý , svo um versló fór ég , Bjössi og Þórey á Siglufjörð þar hittum alla mína fjölskyldu það var bara rosa gaman að fara og prufa síldarævintýrið , en ég segi nú ekki að Þjóðhátíðin hafi nú ekki togað í mig, en það var ekki hægt núna í ár en hún tegndamóðir mín sagðist ættla að lofa að passa fyrir mig næsta ár svo þá kemst ég hehe , en við sjáum til bara . En fimmtudeginum fyrir versló brunuðum við inní Öxarfjörð til Siggu og Steina og gistum eina nótt, það er alltaf æði að koma þangað, með okkur í för þangað voru Lína og Logi, Ómar, Ester og Carmen ýr , svo hittum við Doffu þar .
þetta er allt sem ég hef gert í ferðageiranum í sumar , Sigurveig Hera fór svo í allt annað ferðalag með Pabba sínum.
Núna fer skólin að byrja , eftir 10 daga , mér kvíður pínu fyrir en finnst frekar skrítið að þetta er að verða búið hjá mér, bara 8 mán eftir í verklegu og þá bara búin, obbbobobb .
Þá verður útskrift ,Hver vill koma ?????.
Um helgina fórum við að horfa á gay pride , þar var Steini bró fremstur á bíl niður laugaran svaka flottur , ég hugsa alltaf á þessum degi , ""mikið hlýtur að vera gaman að vera hommi eða lesbía í dag"
Jæja nenni ekki meira BÆJÓ
»
16.07.2008 19:39:16 / rakelbjossi
JÁ JÁ , maður er bara slappur í blogginu, enda ekki mikið um að vera svosöm, en eitthvað kannski, við erum búin að fara upp í dal og gista í hjólhysinu okkar með Þóreyju , það gekk bara ágætlega , gott að komast aðeins útúr borginni, svo um helgina næstu erum við kannski að fara á blönduós að horfa á einhverja torfæru en veit nú ekki hvað ég horfi mikið á það, kannski ættla ég bara sitja einhversstaðar og láta Línu segja mér brandara.
Sumarið er einhvernvegin bara búið finnst mér , sérstaklega fannst mér það þegar ég var stödd inní Hagkaup áðan og sá að allar skólavörurnar eru komnar fyrir haustið, svo kannski finnst mér það af því að ég er ekki á leið til vestmannaeyja um versló , ég er svo barnaleg að ég vex ekkert uppúr því að vilja fara þangað, en við verðum örugglega á Siglufirði um versló ásamt stórfjölskyldunni minni.
Ylfa Lind er búin að eignast strák til hamingju Ylfa mín, hann kom kl 7 í morgun.
núna er þetta að fara að verða spennó , allar stelpurnar fara að detta inn í lífið með börnin sín.
Lína min fór til London í 1 viku og það var gersamlega að fara með mig í gröfina að hafa hana ekki hér í kringum mig , GERÐU ÞETTA NÚ EKKI AFTUR KELLING.
JÆJA MAN EKKERT MEIRA
»
30.06.2008 18:55:10 / rakelbjossi
Ætla henda hérna inn smá færslu, en í f´rettum er þetta helst:
Á föstudaginn fórum við Þórey Adda í bæjarferð með Doffu, Línu og Diddu , það var rosa gaman að eyða deginum með þeim við vorum niðri á laugarvegi allan daginn , bara labba um í góða veðrinu og versla smá , Þórey svaf allan tíman , kannski gaman að segja frá því að við lögðum bílunum okkar uppí iðnskóla en ég kom þangað fyrst og þegar ég var að leggja keyrði ég á gangstéttar kanntinn sem var með múrsteinablómapotti á og það kom bara tjón á bílinn minn , Bjössi segir að það sé svona 60 þús króna tjón , iss iss, Rakel þó , en svo kom Lína á sínum bíl og gerði nákvæmlega það sama og ég en henni var allveg sama um sinn bíl enda soldil drusla en svo kom Didda og viti menn , hún gerði akkurat það sama og við hinar , en þar var ekki blómapottur svo ekkert sást á hennar bíl , en hvað er samt málið með okkur hehe.
Ég hélt partý hérna á laugardagskveldið , jáhá , þetta var nú ekki stórt svosem en þar sem Bjössi var 35 ára í síðustu viku var við hæfið að fá hérna í heimsókn til okkar systkinin okkar og þegar ég býð mínum systkinum í heimsókn öllum í einu þá er bara strax komið frekar fjölmennt partý , en allavega komu öll mín systkini nema ómar og svo komu Adda Maja og Úlfar , Margeir og Alma þannig að þetta var orðið 10 manna partý , þetta var bara mjög gaman ,virkilega góður hópur þarna á ferð fannst mér , það mikið hlegið og spjallað , Margeir fór á kostum við að herma eftir því hvernig Alma dansar, Lína sat í sama stólnum allt kvöldið og kom með fyndin comment hvert á fætur öðru, Didda hafði um nóg að tala bara ef fólk sat á réttum stöðum, rosa fjör á öllum bara .
Þórey Adda var semsagt í sinni fyrstu pössun, var hjá Ömmu Helgu ,fór með mjólk með sér og það gekk bara allt vel en ég var auðvitað með í maganum yfir þessu allt kvöldið og varð í raun ekki róleg fyrr en ég var komin með hana aftur í fangið mitt seinna sama kvöld en gat þó samt skemmt mér ágætlega , en ég yfirgaf þetta partý semsagt fyrst , gestirnir voru bara eftir hjá Bjössa eitthvað frameftir, en það var skrítið en mjög fínt þó ,að geta setið með fólki og spjallað í góðu yfirlæti án þess að vera með barn í maganum eða á brjóstinu allan tíman , skiljiði.
Svo núna er Bjössi kominn aftur í sumarfrí í 3 vikur sem er bara mjög fínt ,við erum nú ekki með nein plön samt nema bara að gera þá hluti hér heima sem hafi verið settir á hold í langan tíma, Sigurveig mín fer í ferðalag á miðvikudaginn og kemur aftur á sunnudaginn.
Mér er farið að langa að komast aðeins upp í þjórsárdal , það þarf að gera ýminslegt þar og svo er bara svo kósý að hanga þar, við getum kannski farið að fara þanngað fljótlega .
svo eru tónleikar á morgun sem mér langar geðveikt á og óska ég hér með eftir félagskap , þetta eru tónlekar með Paul Simon, en ég þekki ekki marga sem fýlar tónlistina hans svo ég finn engan sem vill koma með mér.
Ég skora á einhvert systkinið mitt til að fara að halda spilakvöld ,gaman að vera saman á sumrin, og ég sakna spilakvöldanna okkar .
jæja nóg í bili bæbæbæ
»
18.06.2008 16:28:29 / rakelbjossi
Sko hún Eva rekur á eftir manni með blogg svo kíkir maður inn á hennar síðu og hvað ?ekkert nýtt blogg , maður rekur ekki á eftir bloggi ef maður er svo sjálfur ekkert að blogga á sinni síðu og hananú Eva Dögg.
Litlan okkar fékk nafn á föstud síðasta ,Þórey Adda er það , skírnin gekk bara vel og veislan og allt, það komu 75 manns í veisluna , Þórey Adda fékk mikið að flottum gjöfum og þökkum við kærlega fyrir okkur, svo fá systur okkar ,Lína ,Didda og Adda sérstakar þakkir fyrir hjálpina alla og allir sem hjálpuðu til auðvitað líka.

En gleðilegan þjóðhátíðar dag kæru landsmennn nær og fjær ,hvað er títt?
Í gær fórum við litla fjölskyldan hér á hátíðarskemmtun í tilefni dagsins , við fórum inní kópavog því þar ættluðu mínar ástkæru systur að vera já og voru , það var fínt ,við fórum með vagninn og Þórey Adda svaf bara fyrsta klukkutíman eða meira á skemmtunni mér til mikilla undrunnar reyndar þar sem hávaðinn var gífurlegur , Hera lék sér bara í tækjunum og horfði á skemmtidagskránna en svo vaknaði Þórey og þá byrjað pínu ves, hún vildi auðvitað drekka STRAX og það STRAX svo ég gaf henni þarna innan um trilljón manns en svo vildi hún bara ekki vera þarna lengur hreinlega svo við fórum heim en skildum Heru eftir hjá Diddu systir svo voru bara rólegheitin eftir það hér heima, ágætisdagur svosem .
Annars er auðvitað litið að frétta , mér er farið að langa að gera eitthvað , sumarbústað , ferðalag, fara út að hitta vini eða bara eitthvað ,mér finnst eins og það sé búið að vera þríðjudagur eða bara miðvikudagur hjá mér í marga marga mánuði , fattiði , ekkert breytist eða gerist þótt það sé laugardagur ,helgi ,en auðvitað er það nú kannski skiljanlegt , það er nú ekkert langt síðan ég eignaðist þessa prinsessu , en ég er nú ekkert að tala um að gera eitthvað stórt bara svona eitthvað.
Ég kíkti nú í partý til Ölmu síðasta föstudag ,það var bara gaman en ég gat ekki stoppað lengi þar sem ég er gangandi matsölustaður fyrir Þóreyju og hún sýnir ekki mikla biðlund þessi elska eftir sínum matarskammti .
En jamm bara að blogga smá , bæjó
»
09.06.2008 16:33:50 / rakelbjossi
Jæja allveg rjómablíða í Reykjarvík í dag, hvað ætli það tolli þannig lengi.?
Gott að frétta hér á bæ, reyndar þurfti ég nú að næla mér í einhverja kvefdrullu og hálsbólgu en er að braggast ,lillan fékk líka kvef og mátti þessar pínulitlu nasir ekki við því að fyllast af einhverjum vibba , en saltvatnsdroparnir björguðu þessu, hun er öll að braggast núna.
það er samt svo erfitt eitthvað að blogga núna því ég er svo mikið bara heima lokuð inni að ég hef engar fréttir af einu né neinu , nema jú get sagt ykkur frá þessari fínu grillveislu sem við slógum upp hérna á föstudaginn síðasta , Alma ,margeir,Kobbi og Eva Dögg komu , ótrúlega góður matur ,Eva kom með besta salat sem ég hef smakkað og Alma kom með bestu ostaköku sem ég hef smakkað , allt var bara frábært og gaman.
en heyriði stelpur þið sem eruð óléttar þá lauma ég hérna á þessari flottu skiptitösku ,hún ógó flott , svört ,mjög meðferðileg og þæjó, ég valdi hana sjálf hjá femin.is og hafði mikið fyrir því að bruna þangað og kaupa hana rétt áður en ég átti lilluna , hun kostaði 4.995 kr en svo rétt eftir að ég átti fékk ég gefins barnavagn sem skiptitaska fylgdi með , og það er nottlega í stíl svo ég er að hugsa um að selja töskuna mína , hun er ónotuð ,vantar einhvern þannig??????
jæja hef ekkert að segja meira bæjó
»
01.06.2008 14:40:35 / rakelbjossi
jæja maður verður nú að blogga smá er það ekki , það er bara allt frábært að frétta af mér / okkur, margt búið að gerast síðan síðast, ég var að hugsa um að fara smá yfir örlagadaginn góða sem lillan kom ,
ok þannig var að um nóttina 19 mai vakna ég kl 4 við að ég fékk samdráttarverki sem mér fannst nú reyndar vera furðu öflugur miðað við fyrri samdrætti , ég ákvað að reyna að halda mér vakandi og biða eftir hvort kæmi annar svona verkur , júbb eftir 20 mín kom annar og þá var ég ekki í vafa að um hríðir væru að ræða,
ég reyndi bara að slappa af , vakti ekki Bjössa heldur lá í 2 tíma upp í rúmi og fékk verki annaðslagið svo var komið 15 mín á milli verkja þá hrigndi ég niður á fæðó og boðaði komu mína , svo lagðist ég aftur uppí ,
svona 10 mín yfir 6 kom svo frekar slæmur verkur en þá vakti ég bjössa með því að setja hendina hans á bakið mitt og skipaði honum að nudda ,þá áttaði hann sig á hvað væri í gangi og hann furðaði sig á því að ég skildi ekki hafa vakið hann fyrr , en mér fannst óþarfi að vera bæði vakandi um miðja nótt yfir smá verkjum, við hrigndum svo í mömmu og hun kom til að sinna Heru en við fórum á fæðó.
vorum kominn þangað um kl 7 um morgun, svo bara fór allur dagurinn í að bíða og bíða eftir að verkirnir yrðu öflugri og reglulegri og það var einmitt þannig, ég kvaldist þarna meira og meira með hverri mínutunni,
svo um kl 15:30 byrjaði þessi ósjálfráði rembingur sem táknar bara það að barnið vill fara að koma einfaldlega ,samt fór útivíkunnin aldrei nema í 8 hjá mér , svo ljósan varð að beita aðgerðum til að koma þessari elsku út, á þessum tímapunkti var ég að hugsa "hvað í ósköpunum ertu að gera Rakel jóna , búin að koma þér í þessa stöðu aftur " en svo bara kl 16:42 rembast og rembast og allt í einu birtist þessi litla ofur elskulega , gullfallega ,hágrenjandi dúlla uppá magan minn , og þá einmitt hugsaði ég " já allveg rétt , það var einmitt út af þessari tilfinningu sem ég er að gera þetta " besta tilfinning í heimi.
Bjössi stóð sig allveg afbragðs vel , og ljósan hrósaði mér mikið fyrir að fara í gegnum þetta deyfingarlaus , það er nú meira hvað þessar ljósur eru á móti deyfingum en ok það er annað mál.
Svo um kvöldið kom Hera , allveg að springa úr spennu og stolti, svo um hádegi daginn eftir fórum við heim bara og búin að vera þar síðan hreinlega .
Lillan er algjört æði, sefur 20 tíma á sólarhring og teygjir sig og geispar þess á milli, Hera var pínu abbó í fyrstu en er komin á gott ról aftur .
þær eru bara algjört æði báðar tvær og ég get sagt ykkur það að stundum bara horfi ég á þær þegar þær sofa eða þegar þær vita ekki að ég er að horfa á þær og hugsa með " Guð hvað éger þakklát fyrir að eiga þessar stelpur."
svo var auðvitað mjög gaman af því að annaðslagið hrigndi ég í hörpu eða hún í mig á milli hríða til að vita hvernig hinni gengi og hvað við vorum að upplifa , hehe en hún átti 18 merkur strák á spítalanum upp á skaga sama dag , 19 mai, reyndar 5 tímum seinna en ég .
TIL HAMINGJU KÆRA VINKONA .
En annars er Hera hjá pabba sínum núna , stoppar samt stutt þar, og Bjössi á eina viku eftir í fríi, lífið er bara gott hér .
»
22.05.2008 17:10:55 / rakelbjossi
»
Síður:
1 2 3 ...
7